Ákvað að byrja upp á nýtt, til þess að sjá hvort ég eigi eftir að standa mig betur i nýju umhverfi.
Það er vika eftir af venjulegri skólagöngu, svo tekur lestrarfríið við. Á eftir að skila einu einasta verkefni af þessum 90, og þó hef ég nákvæmlega ekkert lært af reynslunni. Finn mér alltaf eitthvað annað að gera heldur en að byrja tímalega. Eins og til dæmis að byrja á nýju bloggi.
Fengum að vita í seinustu viku hvaða stúdentspróf væru dregin fyrir hvert og eitt okkar, lendi ég í munnlegri líffræði fyrir utan skrifleg stærðfræði sem er skylda, af öllum þessum 6 fögum sem ég klára í ár, ásamt alls kyns ársprófum að sjálfsögðu.
Hef aldrei verið eins leið á að vera í skóla eins og núna, kannski að því að það versta er eftir.
Það gerir það samt auðveldara að veðrið sé svona frábært, birtir til á deginum.
Hjólinu mínu var samt stolið fyrir hálfum mánuði, og akkurat þegar ég var byrjuð að geta hjólað í skólan og var farin að njóta þess. Vona að nýr eigandi njóti þess, ég er allavega með augun opin fyrir nýju einmannalega hjóli án eiganda.
Sit og skrifa verkefni um dönsku rauðsokkana, þar sem ég rökræði allt í kring um þetta við sjálfa mig og hef aldrei áður verið eins stolt af því að vera kona!
Michael hljóp maraþon í dag! Að fólk skuli vilja pína og kvelja líkama sinn, og þar að auki að borga fyrir það. Verð að prufa þetta einn daginn, allavega hálfmaraþon. Bara til þess að geta hugsað til baka, já og talað um það.
Elsti hlauparinn var 74 ára kona, ég hef nægan tíma til þess að þjálfa fyrir þetta ;-)
Fór einmitt út að hlaupa í dag, eins og ég segji, það er allt meira spennandi en að sitja heima fyrir framan tölvuna þegar deadline hangir á herðum mér.
Ég hef heldur aldrei verið áhugasamari gagnvart kapal eins og núna.
Ásgerður - heimsmeistari í að drepa tímann.
Abonner på:
Kommentarer til indlægget (Atom)
1 kommentar:
Hæ Hæ Elskan:)
Gott að vita að þú sért á lífi.
Leiðinlegt með hjólið þitt:(
Allt gott af mér og Valíant:)
Þér er boðið í léttar veitingar 16 júni væri gaman að sjá þíg.
Kveðja af Einigrundinni
Oliver og Ragnheiður
Send en kommentar