torsdag den 14. juni 2007

Lestrarfrí í sólinni

Það væri lygi ef ég segði veðrið vera leiðinlegt, sólin er búin að skína á okkur og hitinn hefur verið hár hár hár.
Ég get ekki klagað yfir því að ,,fríið mitt" hefði verið leiðinlegt, hef getað vappað um á ströndinni, vappað um í garðinum, vappað um í vinnuni og vappað í próf inn á milli.
Á ekki nema tvö próf eftir, skipta hvorug litlu máli þar sem þetta eru bara árspróf. Skrifleg latína á morgun, ég ætti kannski að vera að lesa yfir málfræðina, en læt það vera.

Kasper færði mér Sex in the city boxið um daginn og hef ég legið yfir því, ætli hann hafi gefið mér það til þess að kípa mér busy? Maður spyr sig ;-)

Það styttist í Justin Timberlake tónleikana, eitthvað verður það nú frábært!!

Asnaðist til þess að ráða mig í vinnu á Middelgrundsfortet annað kvöld og laugardagskvöldið. Æji, ég ætti nú að ráða við það.

Amma og afi eru búin að dvelja hjá okkur, og Addó er hérna núna. Notalegt, grænmetissósa og flatkökur.

Hitti Báru, Anítu og Láru um daginn. Ótrúlegt hvað tíminn líður.

Jæja, ég ætla að skríða undir sæng og sofna út frá Sex in the city. Góð upphitun fyrir Latínuna, eða hvað?

- Ásgerður