fredag den 31. august 2007

Góðir tímar!

Jæja, það er víst komin tími á að ég láti vita eitthvað aðeins af mér héðan!

Skólinn er löngu byrjaður og held ég að þetta verði bara alveg ágætt ár, lofar góðu miðað við það seinasta, en hvað er ekki betra en í fyrra?

Sumarið var stutt, eða allavega fljótt að líða. En það varð þó að blautri, drullugri og frábærri Hróaskeldu, alltof stuttri heimsókn til Íslands og dásamlegri Parísarferð. Svo þess var vel notið!

Annars geri ég lítið en að vera í skólanum, læra, æfa fyrir menningarnótt þar sem við í ár dönsum á Glyptoteket innan um alla antíkina, skemmta mér og eyða einhverjum tíma í ekki neitt.

Ég lagðist með flensu eftir skóla á fimmtudaginn, í fyrsta sinn í mörg mörg ár! Enda kann ég alls ekki að vera veik.

Ferð mín liggur svo í námsferð til Rómarborgar í október með Latínuflokknum, eitthvað verður það nú spennandi!

Sigrid flutt til Boston, ótrúlega skrítið að hún sé farin svo langt í burtu!

Annars er pressan á að fara að taka ákvörðun um hvað ég ætli að gera eftir stúdentspróf að verða meiri og meiri. Ef einhver spyr mig gæti mér hætt til að lemja viðkomandi úr stressi! Nei ég segji svona. Er agalega áttavilt og hef ekki grænan grun!

Jæja, ætlaði bara aðeins að láta vita af mér!
Þangað til næst - Ásgerður

2 kommentarer:

Anonym sagde ...

Hæ sæta!:) Gaman að heyra frá þér á blogginu. Er fyrst að geta kommentað hjá þér núna því ég fattaði ekki hvað það var auðvelt að gera svona "google account" sem maður verður víst að hafa. :) En ég fer til Danmerkur 17. október og kem aftur 21.! Svo ef þú verður á landinu þá væri ótrúlega gaman að sjá þig!:):*

Kv. Eyrún

Anonym sagde ...

Hæ sætust:)
ég er orðinn svo spennt að hitta þig´:) Hverni væri að fara að koma með nýja færslu
Kv Ragnheiður